Undirbúningur tækis fyrir endurvinnslu
Ef þú kaupir þér nýtt tæki eða vilt af einhverjum ástæðum losa þig við það mælir Nokia
með því að þú endurvinnir það. Áður skaltu fjarlægja allar persónulegar upplýsingar og
persónulegt efni úr tækinu.
Fjarlægja allt efni og endurheimta sjálfgefnar stillingar
1 Taktu afrit af efninu sem þú vilt eiga á samhæft minniskort (ef það er notað) eða á
samhæfa tölvu.
2 Lokaðu öllum símtölum og tengingum sem eru í gangi.
3 Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Frumstillingar
>
Eyða
gögnum og núllst.
.
4 Þá slokknar á tækinu og kveiknar á því aftur. Gakktu vandlega úr skugga um að allt
persónulegt efni, svo sem tengiliðir, myndir, tónlist, myndskeið, minnismiðar,
skilaboð, tölvupóstskeyti, kynningar, leikir og önnur uppsett forrit hafi verið
fjarlægð.
Efni og upplýsingar sem vistaðar eru á minniskortinu eða SIM-kortinu eru ekki
fjarlægðar.