Myndsímtali komið á
Áttu vini eða ættingja sem þú hittir sjaldan? Af hverju ekki að hringja myndsímtal og
tala við þau augliti til auglitis?
36 Sími
Myndsímtöl eru sérþjónusta og til að hringja myndsímtal verður að tengjast 3G-símkerfi.
Nánari upplýsingar um framboð og kostnað fást hjá þjónustuveitunni.
Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila í einu. Ekki er hægt að koma á
myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal eða gagnasímtal er virkt.
1 Veldu
Valmynd
>
Tengiliðir
og leitaðu að tengilið.
2 Veldu tengiliðinn og veldu
Myndsímtal
á tengiliðaspjaldinu.
Fremri myndavél tækisins er sjálfgefið valin í myndsímtölum. Það getur tekið
dálítinn tíma að koma á myndsímtali. Ef ekki tekst að koma á tengingu (t.d. ef
símkerfið styður ekki myndsímtöl eða móttökutækið er ekki samhæft) er spurt hvort
þú viljir hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð í staðinn.
Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær hreyfimyndir og heyrt hljóð úr
hátalaranum. Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu og þá heyrir þú aðeins
rödd hans og sérð að auki mynd eða gráan bakgrunn.
3 Myndsímtali er slitið með því að velja
.
Mynd send fremur en hreyfimynd í rauntíma
Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Hringistillingar
>
Símtöl
>
Mynd í myndsímtali
.
Þótt þú sendir ekki hreyfimynd í rauntíma verður símtalið samt gjaldfært sem
myndsímtal.
Sími 37