Nokia N8 00 - Notaðu röddina til að hringja í tengilið

background image

Notaðu röddina til að hringja í tengilið

Með raddskipanaforritinu geturðu notað röddina til að hringja í tengilið eða stjórna

tækinu þínu.
Raddskipanir eru ekki háðar rödd þess sem talar. Skipanir eru búnar til sjálfkrafa með

tækinu þínu.

Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu umhverfi eða

í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val við allar aðstæður.
Þegar þú notar raddstýrða hringingu er hátalarinn í notkun. Haltu tækinu nálægt þér

þegar þú gefur raddskipunina.
1 Á heimaskjánum velurðu og heldur

Hringja

. Ef samhæft höfuðtól með

höfuðtólstakka er áfast skaltu halda höfuðtólstakkanum.

2 Stutt hljóðmerki heyrist og textinn

Tala nú

birtist. Berðu nafnið sem er vistað hjá

tengiliðnum skýrt fram.

3 Tækið spilar tilbúið raddmerki fyrir tengiliðinn á því tungumáli sem er valið og birtir

nafnið og símanúmerið. Til að hætta við raddstýrða hringingu velurðu

Hætta

.

Hlusta á raddmerki tengiliðar

1 Veldu tengilið og

Valkostir

>

Um raddmerki

.

2 Veldu upplýsingar um tengilið.
Ef nokkur númer eru vistuð hjá nafni er einnig hægt að bera fram nafnið og gerð

númersins, svo sem farsími eða heimasími.

Sími 39