Tækið stillt á sjálfvirka læsingu
Viltu verja tækið gegn óleyfilegri notkun? Skilgreindu læsingarkóða og stilltu tækið
þannig að það læsist sjálfkrafa þegar það er ekki í notkun.
1 Veldu
Valmynd
>
Stillingar
og
Sími
>
Símastjórnun
>
Öryggisstillingar
>
Sími
og SIM-kort
.
2 Veldu
Láskóði
og sláðu inn læsingarkóða. Slá verður inn minnst 4 stafi og hægt er
að nota tölur, tákn eða há- og lágstafi.
Haltu læsingarkóðanum leyndum og á öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir
læsingarkóðanum og tækið er læst þarftu að leita til þjónustuaðila. Þú getur þurft
að greiða viðbótargjald og persónulegum gögnum í tækinu kann að verða eytt.
Nánari upplýsingar færðu hjá Nokia Care þjónustuveri eða söluaðilanum.
3 Veldu
Sjálfv. læsingartími síma
og tilgreindu tímann sem á að líða þar til tækið
læsist sjálfkrafa.
Tækinu læst handvirkt
Ýttu á á heimaskjánum, veldu
Læsa síma
og sláðu inn læsingarkóðann.
Tækinu aflæst
Renndu takkalásnum til, sláðu inn láskóðann og veldu
Í lagi
.
114 Stjórnun tækis
Ef takkalásinn er ekki innan seilingar, ýttu þá á valmyndatakkann og veldu
Úr lás
.