Nokia N8 00 - Breyta USB-stillingu

background image

Breyta USB-stillingu

Til að fá sem bestar niðurstöður þegar efni er flutt eða tækið þitt samstillt með tölvunni

skaltu virkja viðeigandi USB-stillingu þegar þú notar USB-gagnasnúru.
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Tengingar

>

USB-snúra

og úr eftirfarandi:

Nokia Ovi Suite — Tengdu tækið þitt við samhæfa tölvu sem hefur Nokia Ovi Suite

uppsett. Í þessari stillingu geturðu samstillt tækið þitt við Ovi Suite og notað aðra Ovi

Suite möguleika.
Þessi stilling virkjast sjálfkrafa þegar forritið Ovi Suite er opnað.

Gagnaflutningur — Tengdu tækið þitt við samhæfa tölvu sem hefur ekki Ovi Suite

uppsett. Tækið þitt greinist sem USB flash-minni. Þú getur líka tengt tækið þitt við önnur

tæki, t.d. hljómflutningstæki í bíl eða heimahúsi, sem þú getur tengt við USB-drif.
Meðan tækið er tengt tölvu á þessari stillingu má vera að þú getir ekki notað sum forrit

tækisins.
Hitt tækið hefur ekki aðgang að minniskortinu og gagnageymslunni í tækinu þínu.

Efnisflutningur — Tengdu tækið þitt við samhæfa tölvu sem hefur ekki Ovi Suite

uppsett. Tónlist sem vernduð er með ákvæðum um höfundarrétt þarf að flytja í þessari

stillingu. Einnig er hægt að nota sum heimakerfi og suma prentara í þessari stillingu.

Nettengja tölvu — Tengdu tækið þitt við samhæfa tölvu og notaðu tækið sem

þráðlaust mótald. Tölvan tengist sjálfkrafa við internetið.
Ábending: Þegar USB-snúran er tengd geturðu breytt USB-stillingunni á flestum

skjáum. Veldu

efst til hægri á skjánum.