Nokia N8 00 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Til athugunar: Ekki er hægt að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu svo að vísað er í yfirlýsingar um rafhlöður sem eiga

við um tækið.

Þegar hleðslutæki eða aukabúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

Þegar hleðslutækið er ekki í notkun skal taka það úr sambandi við rafmagnsinnstunguna og tækið. Ekki má hafa fullhlaðna

rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni smátt

og smátt ef hún er ekki í notkun.

Rafhlaðan skal alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma

rafhlöðu. Tæki með heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið.

Skammhlaup getur orðið fyrir slysni þegar málmhlutur kemst í snertingu við málmrendurnar á rafhlöðunni. Skammhlaup getur

valdið skemmdum á rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.

120 Vöru- og öryggisupplýsingar

background image

Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög og reglugerðir.

Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja þeim með heimilisúrgangi.

Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, gata eða tæta rafhlöður. Fari rafhlaðan að leka má vökvinn ekki komast í

snertingu við húð eða augu. Gerist það skal þegar í stað hreinsa svæði sem komast í snertingu við rafhlöðuna með vatni eða

leita læknisaðstoðar.

Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva,

eða bleyta hana. Rafhlöður geta sprungið ef þær skemmast.

Aðeins skal nota rafhlöðuna og hleðslutækið til þess sem þau eru ætluð. Röng notkun eða notkun ósamþykktra rafhlaða eða

hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu eða haft aðra áhættu í för með sér og öll ábyrgð og samþykktir kunna þá að

falla niður. Ef þú telur að rafhlaðan eða hleðslutækið hafi skemmst, skaltu fara með það til þjónustuvers til skoðunar áður en

þú heldur áfram að nota það. Aldrei skal nota skemmda rafhlöðu eða hleðslutæki. Hleðslutækið skal aðeins nota innandyra.