Nokia N8 00 - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki
Þetta tæki er með innbyggða, fasta, endurhlaðanlega rafhlöðu. Ekki reyna að fjarlægja rafhlöðuna úr tækinu þar sem það getur

skemmt tækið. Fara skal með tækið til næsta viðurkennda þjónustuaðila til að skipta um rafhlöðuna.

Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með eftirfarandi hleðslutækjum: AC-15 . Númer hleðslutækisins getur verið

mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð klóarinnar er auðkennd með einu af eftirfarandi: E, X, AR, U, A, C, K eða B.

Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er

orðinn mun styttri en eðlilegt er skal fara með tækið til næsta viðurkennda þjónustuaðila til að skipta um rafhlöðu þess.