Nokia N8 00 - Ökutæki

background image

Ökutæki
Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin,

svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og loftpúðakerfi.

Frekari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda bílsins eða tækjabúnaðarins.

Aðeins á að fela fagmönnum að setja tækið upp í ökutæki. Röng uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda

ábyrgðina. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki

má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukabúnað með

því. Hafa skal í huga að loftbúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða fylgihlutum fyrir á lofpúðasvæðinu.

Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra tækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn

flugvélarinnar og kann að vera ólögleg.